Námskeiðum Greiningar- og ráðgjafarstöðvar í mars er frestað

Ákveðið hefur verið að fresta öllum námskeiðum Greiningar- og ráðgjafarstöðvar sem halda átti í mars en þetta voru námskeiðin Tákn með tali, grunnnámskeið (16. mars), Ungmenni með einhverfu og önnur þroskafrávik (17.-18. mars) og Atferlisíhlutun fyrir börn með þroskafrávik (30. og 31. mars).
Við viljum biðja þátttakendur og aðra áhugasama um að fylgjast með nýjum dagsetningum fyrir námskeið á hér á vefsíðunni www.greining.is og á Facebook síðu Greiningar og ráðgjafarstöðvar. Vinsamlega sendið póst á netfangið fraedsla@greining.is ef eitthvað er óljóst.