Nýr vefur umboðsmanns barna

Nýr vefur umboðsmanns barna er kominn í loftið. Nýjum vef er ætlað að bæta aðgengi barna að embættinu með einfaldari leiðum til að senda fyrirspurnir og nálgast svör við algengum spurningum frá börnum.

Samhliða nýja vefnum kynnti embætti umboðsmanns barna upplýsingasíðu fyrir börn um kórónuveiruna. Á síðunni er hægt að nálgast fjölbreytt efni sem hefur verið birt um faraldurinn en nauðsynlegt er að börn hafi gott aðgengi að vönduðum upplýsingum sem hægt er að nálgast á einum stað.  Hér má sjá upplýsingasíðuna um Covid19.