Námskeiðið Ungmenni með einhverfu og önnur þroskafrávik haldið í október

Námskeiðið  verður haldið næst 5. – 6. október en námskeiðið er ætlað foreldrum, aðstandendum og starfsfólki sem sinna umönnun, ráðgjöf þjálfun og kennslu ungmenna með einhverfu og önnur þroskafrávik frá 13 ára aldri.

Fjallað verður um ódæmigert þroskaferli, styrkleika, áskoranir og hvernig það er að vera öðruvísi. Rætt verður um áhrifaþætti varðandi sjálfsmynd, líðan, samskipti og tengsl þeirra við geðheilsu svo sem kvíða og þunglyndi. Ennfremur verður farið yfir samspil þroska og færni í daglegu lífi og hvernig skipulag og aðlögun umhverfis getur stuðlað að aukinni þátttöku og lífsgæðum ungmenna í þessum hópi. Farið verður yfir hvort greining feli í sér létti eða sorg og hvaða þýðingu hún hefur fyrir viðkomandi einstakling, fjölskyldu hans og nærsamfélagið. Fjallað verður um viðurkennt verklag í þjónustu auk þess sem foreldri mun segja frá eigin reynslu. Námskeiðið er byggt á fyrirlestrum og umræðum.

Hér má sjá nánari upplýsingar um námskeiðið og skrá sig.