Námskeið á haustönn

Fleiri námskeið hafa nú bæst á dagskrá haustannar og nú hefur verið opnað fyrir skráningu á námskeiðin Tákn með tali, grunnnámskeið og Atferlisíhlutun fyrir börn með þroskafrávik.

Grunnnámskeið um Tákn með tali verður haldið 24. september og hér má nálgast allar upplýsingar um námskeiðið.

Atferlisíhlutun fyrir börn með þroskafrávik verður haldið 4. og 5. október og hér eru nánari upplýsingar.