Myndbönd BUGL um starfsemi deildarinnar

Á vef Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans (BUGL) má finna þrjú fræðandi myndbönd um starfsemi deildarinnar en myndböndin eru flokkuð niður í kynningu á legudeild, göngudeildarteymi og bráðateymi. Landspítalinn hefur á undanförnum árum framleitt myndbönd og annað fræðsluefni í þeim tilgangi að bæta kynningu á vef og auka aðgengi skjólstæðinga að upplýsingum um starfsemi deildarinnar. Tekin voru viðtöl við starfsfólk um starfsemina og svo voru einnig tekin viðtöl við skjólstæðinga um þeirra reynslu.

Myndböndin má finna á vefsvæði BUGL