Laus sæti á námskeiðið Atferlisíhlutun fyrir börn með þroskafrávik

Það eru laus sæti á námskeiðið Atferlisíhlutun fyrir börn með þroskafrávik sem haldið verður í Gerðubergi  23. og 24. janúar nk. frá kl. 9.00 til 16.00 báða dagana. Námskeiðið er ætlað aðstandendum og starfsfólki sem starfa við skipulagningu og framkvæmd heildstæðrar atferlisíhlutunar fyrir börn með frávik í þroska í leikskólum. 

Farið er yfir helstu hugtök og aðferðir hagnýtrar atferlisgreiningar, kennslu nýrrar færni og hvernig unnt er að fyrirbyggja og minnka óæskilega hegðun í vinnu með börnum á leikskólaaldri. Einnig er fjallað um innihald og áherslur með hliðsjón af getu barnsins og um daglega framkvæmd og hlutverk ráðgjafa. Foreldrar koma og segja frá þátttöku sinni í heildstæðri atferlisíhlutun. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, umræðum og myndböndum af börnum á mismunandi getustigum.

Nánari upplýsingar og skráning hér. Athugið að það er opið fyrir biðlistaskráningu en þau sem skrá sig á biðlista komast að. Haft verður samband með tölvupósti til staðfestingar þar að lútandi.