Klókir litlir krakkar - skráning að hefjast

Námskeiðið „Klókir litlir krakkar“ sem ætlað er foreldrum barna með þroskafrávik á aldrinum 4-8 ára (fædd 2009-2013), verður á dagskrá á haustönn 2017 og hefst 19. október n.k.

Námskeiðið hefur verið notað til þess að draga úr kvíðaeinkennum hjá börnum hérlendis og erlendis um árabil með góðum árangri. Markmið námskeiðs er að fræða foreldra um eðli kvíða og kenna þeim leiðir til að takast á við kvíðaeinkenni barna sinna og draga úr óöryggi þeirra. 

Námskeiðið er á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins og hefur verið aðlagað að þörfum foreldra barna á einhverfurófi.

Foreldrar sem vilja skrá sig á námskeiðið eru beðnir um að senda tölvupóst á Silju Björk Egilsdóttur, silja@greining.is, með eftirfarandi upplýsingum: Nafn barns, kennitala, nafn foreldra, símanúmer og netfang.

Nánari upplýsingar er að finna á www.greining.is og í meðfylgjandi auglýsingu.