Hjálpartækjasýning Þekkingarmiðstöðvar Sjálfsbjargar

Hjálpartækjasýning 2017
Hjálpartækjasýning 2017

Þekkingarmiðstöð Sjálfsbjargar er fimm ára og af því tilefni verður haldin hjálpartækjasýning dagana 5. og 6. maí næst komandi í Laugardalshöll.

Forseti Íslands hr. Guðni Th. Jóhannesson mun opna sýninguna formlega kl. 14:00 á föstudeginum. Missið ekki af þessum einstaka viðburði og fögnum tímamótunum saman!

Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra mætir á svæðið og prófar nokkur hjálpartæki. Hljómsveitin „Úrkula vonar“ flytur tónlist.

Sjá nánari dagskrá hér