Gleðilegt 2018!

Gleðilegt ár!
Gleðilegt ár!

Við óskum öllum skjólstæðingum okkar og samstarfsaðilum gleðilegs árs og förum hress inn í árið 2018 með úrvali af námskeiðum og vorráðstefnu með hækkandi sól.

Minnum á námskeiðin okkar á vorönn, sjá hér:
Námskeið á næstunni

Vorráðstefnan 2018 verður dagana 26. og 27. apríl á Hilton Reykjavík Nordica:

Mátturinn í margbreytileikanum!
Einhverfa og skyldar raskanir - þekking og leiðir í þjónustu við börn og ungmenni.

Snemmskráning hefst 8. febrúar. Þátttökugjald er kr. 22.000 fyrir fagfólk og 13.500 fyrir aðstandendur en hækkar í kr. 26.500 og 16.000 þann 10. apríl.