Frumsýning á heimildamyndinni "Á sama báti - Ævintýrið í óbyggðum Kanada"

Á sama báti - Ævintýrið í óbyggðum Kanada
Á sama báti - Ævintýrið í óbyggðum Kanada

Á vorráðstefnu Greiningarstöðvar í maí sl. var kynning á heimildamyndinni "Á sama báti - Ævintýrið í óbyggðum Kanada". Þar kynntu Snædís Rán Hjartardóttir og Védís Sigrúnar Ólafsdóttir tilurð myndarinnar og sýndu stutt myndbrot. Myndin verður frumsýnd á RIFF, Reykjavík International Film Festival fimmtudaginn 24. september kl. 18.00 í Tjarnarbíói og verða umræður á eftir. Að auki verða tvær sýningar í Norræna húsinu, 29. september kl. 18 og 1. október kl. 16.