Félagsráðgjafi til afleysinga óskast - framlengdur umsóknarfrestur

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins auglýsir laust til umsóknar starf félagsráðgjafa á Yngri barna sviði. Á sviðinu er veitt þjónusta við ung börn og þau börn sem eru á leikskólaaldri og fjölskyldur þeirra. Um er að ræða afleysingarstarf til eins árs með möguleika á framlengingu.

Helstu verkefni og ábyrgð

- Að veita fjölskyldum ungra barna með þroskafrávik stuðning, upplýsingar og leiðsögn um félagsleg úrræði hjá sveitarfélögum, ríki, einkaaðilum og félagasamtökum og aðstoða við að leita eftir þjónustu og stuðningi. - Vinna í þverfaglegum teymum innan og utan stofnunar, m.a. varðandi greiningu, ráðgjöf og eftirfylgd. - Þátttaka í fræðslustarfi innan og utan stofnunar.

Hæfnikröfur

- Íslenskt starfsleyfi sem félagsráðgjafi.
- Þekking og/eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni og færni til að starfa í teymi.
- Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku.
- Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félagsráðgjafafélag Íslands hafa gert.
Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Sótt er um starfið á starfatorg.is. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði. Á Greiningar- og ráðgjafarstöð starfa um 60 starfsmenn. Hlutverk stofnunarinnar er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar sem leitt geta til fötlunar síðar á ævinni fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem bæta lífsgæði þeirra. Sjá nánar www.greining.is. Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins er framsækin stofnun með fjölskylduvæna starfsmannastefnu sem býður m.a. upp á sveigjanlegan vinnutíma. Nýir starfsmenn fá handleiðslu og starfsþjálfun á aðlögunartíma og er lögð áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar. Gildi stofnunarinnar eru fagmennska, framsækni, velferð og virðing.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 22.02.2021

Nánari upplýsingar veitir: Helga Kristinsdóttir - helgak@greining.is - 510 8400

Smelltu hér til að sækja um starfið