Downs-heilkenni: Reynsla frá Þýskalandi

Á laugardaginn heimsækja tvær þýskar konur félagsmenn og áhugafólk um Downs-heilkenni og deila reynslu sinni af fræðslu, þjálfun og kennslu einstaklinga með Downs-heilkenni. Þær Cora Halder og Inge Henrich hafa hvor um sig áratuga reynslu af að vinna með fólki með Downs-heilkenni á öllum aldri. Umæður fara fram á ensku og íslensku. Allt túlkað eftir þörfum. Fundurinn verður 2. apríl að Háaleitisbraut 13, milli kl. 11 og 13. Boðið verður upp á samlokur. Frábært tækifæri til að ræða og læra af reynslu annarra.

Sjá nánar á heimasíðu félags áhugafólks um Downs-heilkenni