Auðlesnar upplýsingar á pólsku og ensku um kórónaveiruna

Landssamtökin Þroskahjálp gáfu nýlega út  upplýsingabækling um kóróna-veiruna á auðlesnu máli á íslensku í samvinnu við landlækni og heilbrigðisráðuneytið. Samtökin hafa nú bætt um betur og gefið út sama bækling á ensku og pólsku enda mikilvægt að allir fái réttar og góðar upplýsingar um kóróna-veiruna, líka fólk með þroskahömlun af erlendum uppruna og aðstandendur þeirra. 

Smelltu hér til að skoða bæklinginn á pólsku og hér til að skoða bæklinginn á ensku. 

Í bæklingnum kemur eitt og annað fram um uppruna og einkenni veikinda af völdum veirunnar, upplýsingar um sóttkví, handþvott og þær leiðir sem eru bestar til að forðast smit.