Atferlisíhlutun fyrir börn með þroskafrávik

Hverjum er námskeiðið ætlað?
Námskeiðið er ætlað aðstandendum og starfsfólki sem kemur að skipulagningu og framkvæmd heildstæðrar atferlisíhlutunar fyrir börn með þroskafrávik í leikskólum.

Hámarksfjöldi þátttakenda:
Á þessu námskeiði er hámarksfjöldi þátttakenda 40.

Lýsing
Farið er yfir helstu hugtök og aðferðir hagnýtrar atferlisgreiningar, kennslu nýrrar færni og hvernig unnt er að fyrirbyggja og minnka óæskilega hegðun í vinnu með börnum á leikskólaaldri.

Ennfremur er fjallað um innihald og áherslur með hliðsjón af getu barnsins, daglega framkvæmd og hlutverk ráðgjafa. Foreldrar koma og segja frá þátttöku sinni í heildstæðri atferlisíhlutun. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, umræðum og myndböndum af börnum á mismunandi getustigum.

Markmið
Að þátttakendur:

  • þekki undirstöðuþætti heildstæðrar atferlisíhlutunar
  • þekki leiðir til að fyrirbyggja og minnka óæskilega hegðun barna með þroskafrávik
  • þekki til þeirrar reynslu af skipulagi og framkvæmd atferlisíhlutunar í leikskólum hér á landi

Umsjón
Atli Freyr Magnússon, Bára Kolbrún Gylfadóttir og Hólmfríður Ósk Arnalds atferlisfræðingar.