Alþjóðlegur dagur Spina Bifida og Hydrocephalus

Í dag er alþjóðlegur dagur Spina Bifida og Hydrocephalus (í. hryggrauf og vatnshöfuð). Dagurinn er nýttur til að vekja athygli á málefnum þessa hóps og hér má sjá auglýsingar um ýmsa viðburði sem haldnir eru í ýmsum löndum í tilefni dagsins. Hér á landi eru um 50 einstaklingar á ýmsum aldri með hryggrauf. Greiningar- og ráðgjafarstöð sinnir þjónustu við börn og unglinga í þessum hópi. Börn og foreldrar koma í reglulegar móttökur þar sem fylgst er með þroska, líðan, hreyfifærni og þörf fyrir aðlögun umhverfis og hjálpartæki er metin. Hér má finna vefbókina - Líf ungs fólks með hryggrauf. Hér má finna meistararitgerð Marrit Meintema sjúkraþjálfara á Greiningar- og ráðgjafarstöð en hún gerði rannsókn á faraldsfræði, heilsa og líðan meðal fullorðinna með hryggrauf.