AEPS færnimiðað matskerfi

Hverjum er námskeiðið ætlað?
Námskeiðið er ætlað fagfólki sem starfar við ráðgjöf, þjálfun eða kennslu 0-6 ára barna með þroskafrávik. Sérstaklega er mælt með þessu námskeiði fyrir sérkennslustjóra leikskóla.

Hámarksfjöldi þátttakenda
Á þessu námskeiði er hámarksfjöldi þátttakenda 25

Lýsing
AEPS-matskerfið er hagnýtt tæki sem nýtist við gerð einstaklingsnámskrár. Lögð er áhersla á samstarf foreldra og fagfólks við gerð markmiða og sérstakur matslisti fyrir foreldra fylgir. Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig AEPS nýtist til að meta færni barna á sex þroskasviðum: Fín- og grófhreyfingum, vitrænum þáttum, aðlögun, félagslegum tjáskiptum og félagslegu samspili. Þátttakendur fá kennslu í að leggja listann fyrir, nýta niðurstöður við gerð einstaklingsnámskrár og skipuleggja íhlutun í framhaldinu.

Námskeiðinu er skipt á tvo daga. Á fyrri deginum er farið yfir bakgrunn og fyrirlögn AEPS. Á seinni deginum er farið í úrvinnslu og nýtingu listans við gerð einstaklingsáætlana og í íhlutun. Að þessum tveimur dögum loknum er hóphandleiðsla í þrjú skipti þar sem þátttakendur eru aðstoðaðir við að nota AEPS og fá tækifæri til að deila reynslu sinni með öðrum. Dagsetningar verða ákveðnar í samráði við þátttakendur en þeir hafa einnig góðan aðgang að leiðbeinendum á milli daga ef spurningar vakna.

Nauðsynlegt er að hafa AEPS matskerfið meðferðis á námskeiðið og í handleiðsluna. Mörg sveitarfélög, þjónustumiðstöðvar og leikskólar eiga eintök og hvetjum við þátttakendur til að nýta sér þau. Þeir sem vilja festa kaup á matskerfinu geta gert það á http://www.amazon.uk  (athugið að matskerfið samanstendur af fjórum bókum: Volume 1-4).

Markmið
Að þátttakendur:

  • þekki bakgrunn og uppbyggingu AEPS matskerfisins
  • geti lagt það fyrir og nýtt niðurstöður við gerð einstaklingsáætlana og skipulagningu íhlutunar
  • nýti AEPS til að efla samstarf foreldra og fagfólks við að setja markmið og velja leiðir til að auka færni barnsins

Umsjón
Aðalheiður Una Narfadóttir leikskólasérkennari, Helga Kristinsdóttir sálfræðingur og Þóranna Halldórsdóttir þroskaþjálfi