Við leitum að Ráðgjafa í snemmtækri íhlutun!

Ráðgjafar- og greiningarstöð auglýsir laust til umsóknar starf ráðgjafa í snemmtækri íhlutun á Yngri barna sviði. Á sviðinu er veitt þjónusta við ung börn og börn á leikskólaaldri og fjölskyldur þeirra. Leitað er að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á að starfa að fjölbreyttum verkefnum tengdum fjölskyldum fatlaðra barna með þverfaglegu teymi starfsfólks stofnunarinnar. 

Helstu verkefni og ábyrgð eru:

  • Ráðgjöf og eftirfylgd til fjölskyldna og fagfólks vegna barna með alvarlegar raskanir í taugaþroska
  • Sérhæfð ráðgjöf vegna t.d. hegðunarvanda, fæðuinntöku og svefnvanda
  • Vinna í þverfaglegum teymum innan og utan stofnunar 
  • Þátttaka í fræðslustarfi innan og utan stofnunar
  • Þátttaka í rannsóknastarfi

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf í hagnýtri atferlisgreiningu 
  • Reynsla af ráðgjöf
  • Reynsla af snemmtækri atferlisíhlutun leikskólabarna
  • Reynsla af starfi í leikskóla
  • Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni og færni til að starfa í teymi
  • Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
  • Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Sótt er um starfið á starfatorg.is. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar þessarar.

Á Ráðgjafar- og greiningarstöð starfa um 60 starfsmenn. Hlutverk stofnunarinnar er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar sem leitt geta til fötlunar síðar á ævinni fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem bæta lífsgæði þeirra. Sjá nánar www.rgr.is. Ráðgjafar- og greiningastöð er framsækin stofnun með fjölskylduvæna starfsmannastefnu sem býður m.a. upp á sveigjanlegan vinnutíma og er lögð áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar. Gildi stofnunarinnar eru fagmennska, framsækni, velferð og virðing. 

Nýir starfsmenn fá handleiðslu og starfsþjálfun á aðlögunartíma og er lögð áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar. Starfshlutfall er 80-100%. Umsóknarfrestur er til og með 24.04.2023.

Nánari upplýsingar veitir Helga Kristinsdóttir, sviðsstjóri - helga.kristinsdottir@rgr.is - 510 8400

Smelltu hér til að sækja um starfið