Vel heppnað Ungmennaþing ÖBÍ

Þátttakendur voru afar áhugsamir.
Þátttakendur voru afar áhugsamir.

Ungmennaþing ÖBÍ var haldið í fyrsta skipti nýlega sl. en fjöldi ungmenna sótti þingið og fór yfir ýmis verkefni og áskoranir. Aðstandendur jafn sem þátttakendur voru sammála um að vel hafi tekist til en stjórnvöldum verða færðar niðurstöður þingsins. ÖBÍ stefnir að því að þingið verði árlegur viðburður.

Þórdís Viborg, verkefnastjóri hjá ÖBÍ, segir að ungmennin hafi farið yfir ýmislegt sem brennur á þeim, svo sem skólakerfið, tómstundarstarf, íþróttir, aðgengismál og fleira. Hún segir að þrátt fyrir að enn eigi eftir að rýna í niðurstöður þingsins hafi í flestum umræðum komið fram að aðgengi í almennum skilningi væri gjarnan ábótavant, svo sem aðgengi að tómstundarstarfi ýmsu, að félagslífsstarfi á vegum skóla o.fl. Ætlunin sé, þegar niður­stöður þings­ins liggja fyr­ir, að af­henda þær stjórn­völd­um, svo radd­ir ung­menn­anna fái að heyr­ast og hug­mynd­ir þeirra að kom­ast leiða sinna.

Haukur Hákon Loftsson, nemandi í Menntaskólanum við Hamrahlíð, í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 á málþingsdaginn að hann væri kominn á þingið til að láta rödd sína heyrast. „Sjá hvað hægt sé að bæta fyrir okkur fatlaða fólkið. Ekki síst hvað hægt sé að gera fyrir aðstandendur fatlaðs fólks. Bæði hvað varðar skólakerfið, aðgengismál og almenna líðan,“ Haukur sagði einnig að það þurfi að virkja betur félagslegu hliðina. „Það hefur oft verið þannig að fatlað fólk er mikið eitt með sjálfu sér og þá skiptir miklu máli að fólk hafi gott bakland til að eiga gott líf,“ sagði Haukur.

Á Ungmennaþinginu komu saman stelpur og strákar 12-18 ára með fatlanir, raskanir eða langvinna sjúkdóma og líka systkini. Setið var í hópum þar sem rætt var um hvað má betur má fara í skólakerfinu, tómstundum, íþróttum og á fleiri sviðum samfélagsins.

Mynd fengin frá ÖBÍ. Sjá nánar á vef Öryrkjabandalags Íslands.