Skýrsla: Staða geðheilbrigðismála barna og ungmenna

Ný skýrsla frá Embætti landlæknis
Ný skýrsla frá Embætti landlæknis

Embætti landlæknis hefur gefið út skýrslu um geðheilbrigðismál barna og ungmenna, sem unnin er í tengslum við evrópska samstarfsverkefnið EU Compass for Action on Mental Health and Well-Being. Skýrslan inniheldur stöðugreiningu og framtíðarsýn innan málaflokksins og ábendingar um brýnustu forgangsmál.

Í skýrslunni er greint frá niðurstöðum vinnustofu sem 40 stofnanir og félagasamtök á sviði mennta-, félags- og heilbrigðismála tóku þátt í. Markmið vinnustofunnar var að vinna heildstæðar lausnir í skipulagi geðheilbrigðisþjónustu, forvörnum og snemmtækri íhlutun, samstarfi milli stofnana í nærumhverfi og áreiðanlegri söfnun heilbrigðisupplýsinga um geð- og þroskaraskanir meðal barna og ungmenna.

Upprunaleg frétt af vefsíðu Embættis landlæknis