Nú höfum við opnað fyrir skráningu á námskeiðið „Skipulögð kennsla“ sem haldið verður 12. - 14. mars 2018.
Námskeiðið er ætlað aðstandendum og fagfólki sem starfar með börnum og ungmennum með einhverfu, í skólum, á sambýlum, eða hvar sem einhverfir einstaklingar búa og starfa.
Hér fyrir neðan eru nokkrar umsagnir frá þátttakendum sem setið hafa námskeiðið:
- „Vel skipulagt, mjög fræðandi og veitti góða innsýn í skipulagða kennslu“.
- „Gott námskeið sem nýtist mér vel í starfi“.
- „Allt mjög skýrt og markvisst“.
- „Kennslumiðað, verklegt“.
- „Frábær uppspretta af upplýsingum sem munu nýtast mér vel í starfi mínu í leikskólanum“.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fái innsýn í hugmyndafræði TEACCH, læri grunnatriði skipulagðrar kennslu og vinnubragða og geti tekið þátt í uppbyggingu og notkun skipulagsins í skóla, á vinnustað eða heimili einstaklings með einhverfu.
Allar nánari upplýsingar og skráning er á heimasíðu Greiningar- og ráðgjafarstöðvar.