Sálfræðingar – framlengdur umsóknarfrestur

Ráðgjafar- og greiningarstöð auglýsir laus til umsóknar tvö störf sálfræðinga á Yngri barna sviði. Á sviðinu er veitt þjónusta við ung börn og börn á leikskólaaldri og fjölskyldur þeirra. Leitað er að einstaklingum sem hafa brennandi áhuga á að starfa að fjölbreyttum verkefnum tengdum fjölskyldum fatlaðra barna með þverfaglegu teymi starfsfólks stofnunarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Greining, ráðgjöf og eftirfylgd til fjölskyldna og fagfólks vegna barna með alvarlegar raskanir í taugaþroska
  • Vinna í þverfaglegum teymum innan og utan stofnunar
  • Þátttaka í fræðslustarfi innan og utan stofnunar
  • Þátttaka í rannsóknastarfi

Hæfniskröfur:

  • Íslenskt starfsleyfi sem sálfræðingur
  • Þekking og reynsla af notkun helstu greiningartækja vegna greiningar þroskafrávika hjá börnum
  • Þekking og reynsla af vinnu með börnum
  • Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni og færni til að starfa í teymi
  • Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
  • Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum

Laun greiðast skv. gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.

Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Umsóknir skulu sendar á netfangið sigurlaug.k.johannsdottir@rgr.is og vera merktar „Sálfræðingar YBS“. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar þessarar.

Á Ráðgjafar- og greiningarstöð starfa um 60 starfsmenn. Hlutverk stofnunarinnar er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar sem leitt geta til fötlunar síðar á ævinni fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem bæta lífsgæði þeirra. Sjá nánar www.rgr.is. Ráðgjafar- og greiningastöð er framsækin stofnun með fjölskylduvæna starfsmannastefnu sem býður m.a. upp á sveigjanlegan vinnutíma og er lögð áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar. Gildi stofnunarinnar eru fagmennska, framsækni, velferð og virðing.

Nýir starfsmenn fá handleiðslu og starfsþjálfun á aðlögunartíma og er lögð áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar.

Starfshlutfall er 80-100%. Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl 2022.

Upplýsingar um starfið veitir:
Helga Kristinsdóttir sviðsstjóri á Yngri barna sviði í síma 510-8400 eða á netfang: helga.kristinsdottir@rgr.is