Ráðstefna um tækifæri barna og ungmenna í íþróttastarfi

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið í samvinnu við mennta- og barnamálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið stendur fyrir ráðstefnu á Hótel Hilton 7. apríl kl. 9-15:30 undir yfirskriftinni Farsælt samfélag fyrir alla – tækifæri barna og ungmenna í íþróttastarfi. Á ráðstefnunni verður leitast við að koma auga á þær áskoranir sem við enn stöndum frammi fyrir þegar kemur að jöfnum tækifærum allra barna til íþróttaiðkunar. Þá munu fulltrúar notenda, íþróttafélaga, íþróttasambanda,  þjónustukerfi ríkis og sveitarfélaga vinna saman að mótun tillagna að aðgerðaáætlun um fulla þátttöku og virkni fatlaðs fólks á forsendum eigin getu.

Upplýsingar um skráningu og nánari upplýsingar hér.