Ráðstefna um stöðu og þarfir fatlaðra barna með innflytjendabakgrunn

Staða barna með innflytjendabakgrunn verður rædd.
Staða barna með innflytjendabakgrunn verður rædd.

Landssamtökin Þroskahjálp standa fyrir ráðstefnu á Grand hótel í Reykjavík 2. maí nk. kl. 13.00 – 16.30 um stöðu og þarfir fatlaðra barna með innflytjendabakgrunn og þjónustu við þau.

Ráðstefnan er haldin í samstarfi við stofnanir, félög og samtök sem láta sig mál fatlaðra barna með innflytjendabakgrunn sérstaklega varða.
Á ráðstefnunni verða flutt mörg áhugaverð erindi sem varpa ljósi á stöðu fatlaðra barna með innflytjenda bakgrunn í íslensku samfélagi. Leitast verður við að svara spurningum eins og hverjar séu aðstæður þeirra og þarfir, hvernig þjónustu við þau verði best háttað og hvað megi gera til að tryggja að best verði komið móts við þarfir barnanna?

Norski félagsfræðingurinn Berit Berg sem virtur fræðimaður á sínu sviði flytur erindi á ráðstefnunni. Kynntar verða fyrstu niðurstöður íslenskrar rannsóknar sem byggir á viðtölum við foreldra fatlaðra barna með innflytjendabakgrunn og mæður með slíkan bakgrunn verða meðal fyrirlesara.
Fagfólk og aðrir sem koma að þjónustu og töku ákvarðana varðandi fötluð börn með innflytjendabakgrunn og aðstandendur þeirra eru sérstaklega hvattir til að taka daginn strax frá og mæta á þessa mikilvægu ráðstefnu.
Ekkert gjald er á ráðstefnuna.

Nánari upplýsingar á vef Þroskahjálpar. 
Mynd fengin af vef Þroskahjálpar.