Ráðstefna: Að skilja vilja og vilja skilja - glærur og upptökur

Nú eru upptökur og glærur af fyrirlestrunum á ráðstefnunni „Að skilja vilja og vilja skilja“ sem haldin var á dögunum aðgengilegar á netinu. Ráðstefnan fjallaði um hvernig hægt er að styðja fólk sem notar óhefðbundnar tjáskiptaleiðir við að fara með sjálfræði sitt. Hún var haldin á vegum réttindavaktar velferðarráðuneytisins og í samvinnu við Öryrkjabandalag Íslands, Landssamtökin Þroskahjálp, Samband íslenskra sveitarfélaga og Háskóla Íslands.

Smellið hér til að fara á slóð stjórnarráðsins