Ráð til aðstandenda barna á einhverfurófi vegna kórónaveirunnar

Nýlega birtist í fagtímaritinu Brain Science grein um ráð til foreldra og aðstandenda barna á einhverfurófi vegna kórónaveirunnar: Handle the Autism Spectrum Condition During Coronavirus (COVID-19) Stay At Home period:  Ten Tips for Helping Parents and Caregivers  of Young Children, eftir einhverfusérfræðinginn  Antonio Narzizi.

Í greininni koma eftirfarandi atriði meðal annars fram:

Útskýrið ástandið vel fyrir börnum á einhverfurófi
Mikilvægt er að útskýra vel fyrir börnum á einhverfurófi hvað Covid-19 sé og af hverju þau þurfi að dvelja heima.  Einnig er mikilvægt að útskýringarnar séu eins einfaldar og skorinyrtar og mögulegt er.

Skipuleggið daglegar athafnir
Sömuleiðis er mikilvægt að skipuleggja daglegar athafnir þar sem hefðbundar venjur hafa verið brotnar upp út af kórónaveirunni og ástandinu sem henni fylgir. Til dæmis með því að skipta upp heimilinu og herbergjum þess niður í einingar þar sem tilteknar daglegar athafnir eru framkvæmdar og hvergi annars staðar. Þessu skipulagi má sinna með allri fjölskyldunni og breyta í leik.

Skipulögð virkni
Börn á einhverfurófi hafa þörf fyrir að leika sér eins og önnur börn en þeim finnst sumir leikir erfiðir vegna skynjunarvanda, eða vegna þess að þau kjósa frekar skipulagða virkni (e. structured activities) annað hvort ein og sér eða með öðrum. Mælt er sérstaklega með Lego – þerapíu í þessu tilliti.

Uppbyggilegir leikir
Svokallaðir „uppbyggilegir leikir“ (e. serious games)  geta verið nytsamlegir til að efla félagsfærni, lesa úr svipbrigðum fólks og tilfinningalegum viðbrögðum barna á einhverfurófi. Margir slíkir leikir fást ókeypis á netinu og er hægt að nálgast sem smáforrit fyrir síma og spjaldtölvur eða á netinu fyrir fartölvur. Hér og hér má hlaða niður texta um lesa um uppbyggilega leikien einfalt að gúggla og finna meiri fræðslu um þessa tegund leikja, einnig í tengslum við einhverfu. 

Tölvu- og videoleikir í hófi
Tölvuleikir af ýmsu tagi eru oft afar heillandi fyrir börn á einhverfurófi og erfitt fyrir foreldra og aðstandendur að hamla notkun þeirra þegar öllum fjölskyldumeðlimum ber að vera meira og minna heima. Æskilegt er að búa til skýran ramma vegna tölvuleikja og beina leikjanotkuninni í þá átt að börnin deili leikjum og leiki sér eingöngu með öðrum í fjölskyldunni, aðstandendum og/eða vinum og freista þess þannig að barnið einangrist ekki í sínum leikum. Einnig getur þetta fyrirkomulag komið í veg fyrir að barnið verði háð leikjunum.  

Sértækur áhugi
Foreldrar margra barna á einhverfurófi kannast við ýmiskonar sértækan og ákafan áhuga barna sinna á hinu og þessu. Rannsóknir sýna að það getur verið barninu fyrir bestu að aðstandendur sýni þessum sértæku áhugamálum áhuga  og sinni þeim með barninu, hvort sem um er að ræða lestir, landabréf, dýr, teiknimyndasögur, landafræði, rafmagntæki eða eitthvað allt annað. Það getur verið góð hugmynd að skipuleggja einhverskonar sameiginlega virkni í tengslum við sértækan áhuga barnanna.

Í greininni má lesa um fleiri hagnýt ráð, svo sem meðferð á netinu fyrir börn með góða virkni (e. high-functioning) og fjarfundi milli ráðgjafa, foreldra og annarra sem sinna barninu. Slík meðferð er ekki síður mikilvæg fyrir foreldra barna á einhverfurófi sem upplifa meira álag en flestir aðrir foreldrar út af því ástandi sem nú ríkir þar sem fólk er að mestu heima. Einnig um mikilvægi þess að halda úti samskiptum við skóla og gefa barninu frítíma frá skipulagðri virkni.