PECS myndrænt boðskiptakerfi - grunnnámskeið í febrúar 2018

PECS námskeið í febrúar
PECS námskeið í febrúar

Dagana 15. -16. febrúar næst komandi verður haldið grunnnámskeið í myndræna boðskiptakerfinu PECS (Picture Exchange Communication System) en það er óhefðbundin tjáskiptaleið þróuð fyrir einhverf börn. Sá sem notar PECS lærir að nota mynd til þess að biðja um hlut/athöfn og annað sem hann hefur þörf á að tjá sig um.

Námskeiðið verður haldið í Reykjavík, og er frá kl. 9:00–12:00 báða dagana. Þátttökugjald er 18.000 (foreldri greiðir 12. þúsund). Umsjón hefur Sigrún Kristjánsdóttir þroskaþjálfi. Þátttakendur eru beðnir um að skrá sig með því að senda tölvupóst á netfangið: diddakr@internet.is fyrir 5. febrúar

Allar nánari upplýsingar má finna hér