Opið fyrir skráningu á Vorráðstefnu Ráðgjafar- og greiningastöðvar

Opnað hefur verið fyrir skráningu á Vorráðstefnu Ráðgjafar- og greiningastöðvar sem haldin verður 11. og 12. maí nk á Hilton Reykjavik Nordica hótelinu. Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er Fagmennska og framsækni í þjónustu við börn með fatlanir. Sem fyrr er hægt að skrá sig bæði staðbundið og í streymi en von aðstandenda ráðstefnunnar er að sjá sem flesta í vor.

Hér er hægt að smella á skráningarsíðu ráðstefnunnar. 

Dr. Sigurður Kristinsson prófessor við Háskólann á Akureyri mun fjalla um fagmennsku í víðu samhengi, hvað felst í hugtakinu og hvaða skyldur það leggur á herðar fagfólks. Dr. Sigrún Harðardóttir dósent og dr. Sigrún Júlíusdóttir munu fjalla um sjálfsrækt og mikilvægi handleiðslu fyrir fagfólk til að þroskast í starfi.

Sagt verður frá hvernig Akranesbær útfærir þjónustu við börn í anda Farsældarlaganna og Ragnheiður Hergeirsdóttir lektor kynnir Farsæld barna sem er ný námsleið við HÍ. Guðný Stefánsdóttir sviðsstjóri á RGR kynnir SIS matið og hvernig það nýtist í daglegu starfi með börnum og sagt verður frá verkefni í grunnskólum í Kópavogi sem kallast „Þegar réttindi og velferð grunnskólabarna stangast á“.

Sagt verður frá hvernig uppáhaldsorðin Færni – Fjölskylda – Form – Fjör – Vinir – Framtíð eru fléttuð inn starfið á Æfingastöðinni og ungar konur með CP kynna jafningjafræðslu á vegum CP félagsins. Inga Björk Margrétar Bjarnardóttir doktorsnemi mun fjalla um áskoranir sem fatlaðir standa frammi fyrir í rafræna heiminum og Haraldur Bjarnason frá Auðkenni mun kynna rafrænar lausnir sem eiga að nýtast öllum.

Óttarr Proppé verkefnastjóri í Mennta- og barnamálaráðuneytinu mun kynna stefnumótun í málefnum fatlaðra barna af erlendum uppruna og einnig verður sagt frá Alþjóðateymi velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og hvernig það tryggir réttindi flóttafólks m.a. skólagöngu barna.

Dagskrá ráðstefnunnar verður ekki skipt upp í tvær málstofur eins og stundum áður. Margt fleira verður á dagskránni sem nú er verið að leggja lokahönd á en gert er ráð fyrir að fullbúin dagskrá verði kynnt í apríl. Vonast starfsfólk Ráðgjafar- og greiningarstöðvar til að sem flest geti notið hennar með okkur í vor.

Sem fyrr verður boðið upp á streymi fyrir þátttakendur sem ekki eiga heimangengt. Athygli er vakin á því að hádegisverður er innifalin í ráðstefnugjaldi fyrir þau sem taka þátt staðbundið á fimmtudeginum. Einnig vekjum við athygli á því að hægt er að greiða með debet- eða kreditkortum við skráningu, ekki verður hægt að fá greiðsluseðla senda í banka eins og undanfarin ár.