Nýtt námskeið um kvíða barna á einhverfurófi

Greiningar- og ráðgjafarstöðu hefur hleypt nýju námskeiði af stokkunum, Kvíði barna á einhverfurófi - fræðslunámskeið fyrir foreldra. Námskeiðið var haldið í fyrsta sinn í nóvember sl. og verður haldið aftur nú í febrúar 2021. Um er að ræða  hagnýtt fræðslunámskeið um kvíða þar sem farið er yfir helstu einkenni kvíða hjá ungum börnum á einhverfurófi. Farið verður yfir aðferðir til að draga úr kvíðaeinkennum barna og koma í veg fyrir kvíða síðar á lífsleiðinni. Milli tíma vinna foreldrar heimaverkefni sem snúa að því að draga úr kvíðaeinkennum barna sinna. Mælt er með er að foreldrar mæti í báða tímana.

Guðrún Ólafsdóttir sálfræðingur á Greiningar- og ráðgjafarstöð er kennari námskeiðsins og hefur sett saman námskeiðsgögnin. Hún segir að í sínu starfi hafi hún orðið vör við að kvíði barna á einhverfurófi geti hamlað þeim töluvert í sínu daglega lífi. Hins vegar séu til gagnreyndar aðferðir sem nýtast börnunum og foreldrum þeirra í baráttunni við kvíðann.

Hér má lesa meira um námskeiðið. 

Hér má sjá yfirlit