Ný íslensk bók um dag í lífi drengs með ADHD

Út er komin ný íslensk bók, Elli - dagur í lífi drengs með ADHD á vegum ADHD samtakanna.

Bókin er fjörug, ríkulega myndskreytt barnabók, byggð á raunverulegum atburðum í lífi níu ára íslensk drengs sem er með ADHD.
Krakkar með ADHD upplifa sig oft misskilin og fá gjarnan neikvætt viðmót þegar þau eiga erfitt með að hlýða, vera kyrr eða vinna verkefni sem þeim finnst óspennandi. Megininntak bókarinnar að gefa raunsanna innsýn í líf barna með ADHD og benda ungum jafnt sem öldnum á að það er vel hægt að líta á ADHD með jákvæðum hætti; það er hægt að „beisla“ ADHD til góðs! Bókin er 44 blaðsíður.

Sjá nánar hér á vef ADHD samtakanna.