Námskeið: Óhefðbundnar tjáskiptaleiðir

Óhefðbundnar tjáskiptaleiðir
Óhefðbundnar tjáskiptaleiðir

Þann 17. ágúst næstkomandi mun Félag talmeinafræðinga á Íslandi standa fyrir námskeiðinu Creating Core Vocabulary Environment for Students with Complex Motor and Communication Needs með bandaríska talmeinafræðingnum Gail M. Van Tatenhove MS, CCC-SLP. Námskeiðið verður haldið á Hilton Reykjavík Nordica og stendur frá kl 09:00 -16:00.

Um fyrirlesarann: Gail Van Tatenhove er sjálfstætt starfandi talmeinafræðingur sem vinnur með börnum og fullorðnum sem nota óhefðbundnar tjáskiptaaðferðir og tjáskiptatæki. Hún hefur staðið að þróun tjáskiptatækjabanka, þróun á meðferðarformi og meðferðarefni fyrir þjálfun á tjáskiptatækni, tekið þátt í verkefnum á sviði tjáskiptatækni á vegum samtaka talmeinafræðinga í Bandaríkjunum (ASHA) og verið virk í bandarískum samtökum sem tengjast tjáskiptatækni.

Um námskeiðið: Kjarnaorðaforði (core vocabulary) er lykilatriði í tjáskiptum. Hér verður skoðað hvernig hægt sé að nýta kjarnaorðaforða innan kennslustofunnar og tengja hann við sjónrænan stuðning, fyrirmynd og beina orðaforðakennslu. Oft er mikil áhersla á grunnþarfir og sértækar aðstæður þegar verið er að útbúa tjáskiptakerfi fyrir nemendur með flóknar tjáskiptatruflanir. Sá orðaforði sem er tiltækur fyrir barnið inniheldur því oft nær einungis hlutbundinn og aðstæðubundinn orðaforða, þar sem talið er að þau orð séu „létt“ og fullnægi þörf einstaklingsins til að tjá sig. Sú nálgun sem hér er boðuð felur í sér að leggja áherslu á kjarnaorðaforða í stað aðstæðubundins orðaforða. Þá er aðstæðubundnu tjáskiptakerfi skipt út fyrir kerfi með aðgengilegum kjarnaorðum sem hægt er að nota óháð umhverfi og með hvaða viðmælanda sem er. Á þessu námskeiði mun verða farið í aðferðir til að útfæra kennsluumhverfi til að styðja við innlögn kjarnaorðaforða. 

Heimasíða Gail Van Tatenhove.

Námskeiðið er ætlað talmeinafræðingum, kennurum, þroskaþjálfum, leiðbeinendum og öðru fagfólki sem starfar með nemendum með flóknar hreyfi- og tjáskiptaþarfir. 

Verð: 23.000 fyrir 15. júní og 30.000 eftir það, síðasti skráningardagur er 10. ágúst. Alls 85 sæti eru í boði. Innifalið í námskeiðisgjaldi er hádegisverður og kaffi. 

Skráning fer fram á www.tix.is.

Námskeiðið er styrkt af Velferðarráðuneytinu.

Viðburður á Facebook

Með kveðju,
Félag talmeinafræðinga á Íslandi
www.talmein.is