Næstu námskeið

Námskeið haustannar eru að hefjast og skráning er í fullum gangi á heimasíðunni okkar. Í september verða eftirtalin námskeið á dagskrá:

20. - 21. september: APES færnimiðað matskerfi í samstarfi við Skólaskrifstofu Austurlands. Nánari upplýsingar og skráning: www.skolaust.is
24. september: Tákn með tali, grunnnámskeið. Haldið í Gerðubergi. Nánari upplýsingar og skráning hér.
25. - 26. september: AEPS færnimiðað matskerfi. Haldið í Gerðubergi. Nánari upplýsingar og skráning hér.
27. og 28. september: Ungmenni með einhverfu og önnur þroskafrávik í samstarfi við Skólaskrifstofu Austurlands. Nánari upplýsingar og skráning: www.skolaust.is
28. september: Röskun á einhverfurófi, grunnnámskeið. Haldið í Gerðubergi.  Nánari upplýsingar og skráning hér.

Hér má svo finna námskeiðsbækling haustannar 2018.