Mikilvæg skilaboð til foreldra

Greiningar- og ráðgjafarstöð hefur nú opnað aftur eftir sumarleyfi. Stöðin vill koma á framfæri mikilvægum skilaboðum til foreldra vegna fyrirhugaðra þverfaglegra athugana á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, á tímum Covid-19. Vegna hættu á smiti setur stöðin fram eftirfarandi tilmæli: 

  • Að foreldrar og barn/ungmenni mæti sem næst bókuðum tíma til að takmarka fjölda á biðstofu
  • Að systkini barnsins/ungmennisins séu ekki með í för
  • Að einungis annað foreldri sé með í för, nema ef um er að ræða viðtal við foreldra
  • Að fyllsta hreinlætis sé gætt og foreldrar og barn/ungmenni þvoi sér um hendur og spritti um leið og komið er inn í hús Greiningar- og ráðgjafarstöðvar
  • Að gæta þess að hafa a.m.k. 2 metra á milli fólks
  • Að heilsa ekki með handabandi
  • Mjög mikilvægt: Vinsamlega ekki koma í bókaðan tíma á Greiningar- og ráðgjafarstöð ef foreldrar eða barn/ungmenni hafa fundið fyrir einhverjum einkennum sem gætu bent til Covid-19, eins og einkennum inflúensu eða kvefs, verið með beinverki, hita eða þurran hósta eða misst bragð- og lyktarskyn. Hringið þess í stað í síma 510-8400 til að fá nánari upplýsingar og nýjan tíma. Verði starfsmaður var við að foreldrar eða barn/ungmenni komi í athugun með einhver einkenni af þessu tagi verða þau send heim og athugun frestað.

Hér má sjá ýmiskonar leiðbeiningar til aðstandanda skjólstæðinga Greiningar- og ráðgjafarstöðvar vegna Covid-19:

Hér má sjá leiðbeiningar til aðstandenda langveikra barna.

Ráð til aðstandenda barna á einhverfurófi vegna kórónaveirunnar

Sjónrænt skipulag – ráðleggingar fyrir foreldra og aðstandendur barna með einhverfu vegna Covid -19