Litróf einhverfunnar - tilnefning til Hvatningarverðlauna ÖBÍ

Litróf einhverfunnar
Litróf einhverfunnar

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins hefur verið tilnefnd til Hvatningarverðlauna ÖBÍ 2014, í flokki fyrirtækja/stofnana fyrir ritun bókarinnar „Litróf Einhverfunnar“.

Markmið verðlaunanna er að vekja athygli á þeim sem hafa stuðlað að einu samfélagi fyrir alla. Hvatningarverðlaunin eru veitt á alþjóðadegi fatlaðra, 3. desember, ár hvert.Verðlaunin eru nú afhent í áttunda sinn og verða veitt í þremur flokkum, flokki einstaklinga, fyrirtækja/stofnana og umfjöllunar/kynningar, þrjár tilnefningar eru í hverjum flokki og ein verðlaun verða veitt í hverjum þeirra.

Ritstjórarnir Sigríður Lóa Jónsdóttir og Evald Sæmundsen ásamt starfsmönnum Greiningar- og ráðgjafarstöðvar eru tilnefnd í flokki fyrirtækja/stofnana, fyrir ritun bókarinnar „Litróf Einhverfunnar“ og fyrir þátt stofnunarinnar í að breyta hugarfari almennings til fatlaðra.

Í bókinni er fjallað um greiningu á einhverfu, orsakir hennar og meðraskanir, framvindu og horfur, meðferð, þjónustu, fjölskyldur, líf og reynslu einhverfra. Sjónum er einkum beint að börnum og unglingum, en þó einnig að öðrum aldurshópum. Þá eru í bókinni nýjar upplýsingar um sögu einhverfu á Íslandi.

Bókin er hugsuð fyrir foreldra og aðra ættingja, einhverfa sjálfa, þá sem tengjast einhverfum í starfi, nemendur í framhaldsskólum og á neðri stigum háskóla, svo og aðra sem hafa áhuga á einhverfu.
Bókin er samin af starfsmönnum Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins og gefin út af Háskólaútgáfunni. Ritstjórar eru Sigríður Lóa Jónsdóttir og Evald Sæmundsen.

Litróf einhverfunnar fæst hjá Bóksölu stúdenta og í öllum helstu bókaverslunum landsins.