Laust starf sérfræðings hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð

Ertu með brennandi áhuga á að starfa að fjölbreyttum verkefnum tengdum fjölskyldum fatlaðra barna. Langtímaeftirfylgd Greiningar- og ráðgjafarstöðvar óskar eftir öflugum liðsmanni í þverfaglegt teymi sviðsins. Starfshlutfall er 60-100% og æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Langtímaeftirfylgd sinnir fötluðum börnum og unglingum sem ætla má að þurfi sérhæfða þjónustu til lengri tíma. Þjónusta sviðsins er þverfagleg og tekur mið af þörfum barna og fjölskyldna þeirra. Byggt er á teymisvinnu með áherslu á fjölskyldumiðaða þjónustu.

Starfssvið

  • Mat, ráðgjöf og eftirfylgd vegna barna og unglinga með alvarleg þroskafrávik
  • Samvinna og ráðgjöf til barna, fjölskyldna þeirra og annarra fagaðila, til dæmis varðandi þátttöku, hegðun, líðan, daglega færni, notkun hjálpartækja og tæknileg ráðgjöf
  • Mat á færni, aðlögun og þátttöku í samvinnu við aðra fagaðila
  • Þátttaka í fræðslu- og rannsóknarstarfi

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi á sviði heilbrigðis-, menntunar- og félagsvísinda, svo sem iðjuþjálfi, sjúkraþjálfari. Vegna samsetningar teymisins eru iðjuþjálfar sérstaklega hvattir til að sækja um. Einnig kæmu aðilar, með aðra bakgrunnsmenntun með reynslu og þekkingu á því sviði sem leitað er eftir, til greina.
  • Þekking og áhugi á tölvu- og tæknitengdum lausnum er æskileg
  • Menntun, þekking eða reynsla á sviði málefna fatlaðra barna er nauðsynleg
  • Hæfni til frumkvæðis, sjálfstæðra vinnubragða og lausnarmiðaðrar nálgunar
  • Hæfni í mannlegum samskiptum

Laun og kjör eru skv. gildandi kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Frekari upplýsingar gefa Ingólfur Einarsson sviðsstjóri, Hrönn Björnsdóttir eða Marrit Meintema verkefnastjórar hjá langtímaeftirfylgd í síma 510 8400.

Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, berist Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, Digranesvegi 5, 200 Kópavogi, eða í tölvupósti á ingolfur@greining.is fyrir 4. sept.  2020. Öllum umsóknum verður svarað.

Vegna kynjasamsetningar á vinnustaðnum eru karlmenn hvattir til að sækja um. Litið verður svo á að umsóknir gildi í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur.

Hlutverk Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar sem leitt geta til fötlunar síðar á ævinni fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem bæta lífsgæði þeirra, sjá nánar á www.greining.is.

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins er framsækin stofnun með fjölskylduvæna starfsmannastefnu sem býður m.a. upp á sveigjanlegan vinnutíma. Nýir starfsmenn fá handleiðslu og starfsþjálfun á aðlögunartíma og er lögð áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar.