Laus sæti á grunnnámskeið um einhverfurófið í fjarkennslu 24. mars nk.

Námskeiðið Einhverfurófið – grunnnámskeið verður kennt í fjarfundi þann 24. mars nk. Námskeiðið er eitt hið vinsælasta á vegum Ráðgjafar- og greiningarstöðvar (áður Greiningar- og ráðgjafarstöðvar) en námskeiðið er ætlað aðstandendum og starfsfólki sem sinna umönnun, þjálfun og kennslu barna með einhverfu, Aspergers heilkenni og aðrar raskanir á einhverfurófi. 

Fjallað er um einhverfurófið, einkenni einhverfu og birtingarform þeirra, greiningu, álag á fjölskylduna og samstarf foreldra og fagfólks. Námskeiðið byggist aðallega á fyrirlestrum, fræðslumyndböndum um einhverfu og umræðum. Námskeiðið er hugsað sem fyrsta skrefið í fræðslu um einhverfu og grunnur að öðrum námskeiðum með afmarkaðari viðfangsefnum. Kennslu- og meðferðarleiðir verða til dæmis ekki kynntar á þessu námskeiði heldur á öðrum námskeiðum.

Eins og áður segir er námskeið að þessu sinni kennt á fjarfundi og hentar því vel fólki sem býr á landsbyggðinni sem og öðrum sem ekki eiga heimangengt. 

Skráning fer fram hér: Einhverfurófið – grunnnámskeið (0322) | Ráðgjafar- og greiningarstöð