Læknir óskast til starfa

Ráðgjafar- og greiningarstöð leitar að öflugum lækni til starfa sem hefur brennandi áhuga á að starfa að fjölbreyttum verkefnum tengdum fjölskyldum fatlaðra barna með þverfaglegu teymi starfsfólks stofnunarinnar. Barnalæknar auk unglækna sem eru í sérfræðinámi í barnalækningum eða á leið í slíkt nám eru sérstaklega hvattir til að sækja um.  

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Greining, ráðgjöf og eftirfylgd til fjölskyldna og fagfólks vegna barna með alvarlegar raskanir í taugaþroska. Hlutverk læknis er m.a. heilsueftirlit, orsakagreining og ráðgjöf til foreldra og þjónustuaðila
  • Vinna í þverfaglegu teymi. Læknir tekur þátt í athugun á börnum í samstarfi við aðra sérfræðinga
  • Þátttaka í fræðslu og rannsóknum á vegum stofnunarinnar

Hæfniskröfur: 

  • Íslenskt lækningaleyfi

  • Sérfræðileyfi í barnalækningum er æskilegt en ekki skilyrði

  • Reynsla af þverfaglegu starfi við mat og ráðgjöf

  • Reynsla og áhugi á fræðslu og rannsóknum

  • Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni

  • Góð færni við að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku

  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

Frekari upplýsingar um starfið:

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert. 
Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Sótt er um starfið á starfatorg.is. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar þessarar.

Á Ráðgjafar- og greiningarstöð starfa um 60 starfsmenn. Hlutverk stofnunarinnar er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar sem leitt geta til fötlunar síðar á ævinni fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem bæta lífsgæði þeirra. Sjá nánar www.rgr.is

Ráðgjafar- og greiningarstöð er framsækin stofnun með fjölskylduvæna starfsmannastefnu sem býður m.a. upp á sveigjanlegan vinnutíma og er lögð áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar. Gildi stofnunarinnar eru fagmennska, framsækni, velferð og virðing. Nýir starfsmenn fá handleiðslu og starfsþjálfun á aðlögunartíma 

 Starfshlutfall er 70-100%. Umsóknarfrestur er til og með 16.05.2022

Nánari upplýsingar veitir

Solveig Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri lækninga - solveig.sigurdardottir@rgr.is - 510 8400

Smelltu hér til að sækja um starfið