Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur barna með ADHD

Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur 6-12 ára barna með ADHD verður haldið í húsnæði ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13 í Reykjavík, 12. og 19. september  2020. Vel verður gætt að sóttvörnum og boðið uppá þátttöku um fjarfundarbúnað kjósi menn slíkt - hvar sem er á landinu.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á hvað er ADHD og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi barna með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur barna með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nána. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.

Boðið verður uppá fjarfundarbúnað fyrir þá sem ekki geta mætt á staðinn. 

DAGSKRÁ: 

Laugardagur I - 12. september 2020
Kl. 10:00–11:15  
Hvað er ADHD?
Kl. 11:15–11:30  
Hlé
Kl. 11:30–12:45  
Samskipti innan fjölskyldna barna með ADHD
Kl. 12:45-13:30   
Matarhlé
Kl. 13:30-14:45   
Félagsfærni barna með ADHD, hvað geta foreldrar gert?

Laugardagur II - 19. september 2020
Kl. 10:00-11:15   
Lyfjameðferð við ADHD
Kl. 11:15-11:30   
Hlé
Kl. 11:30-12:45   
ADHD og nám
Kl. 12:45-13:30   
Matarhlé
Kl. 13:30-14:45   
Líðan barna með ADHD

** ATH. uppröðun fyrirlestra gæti breyst.

Hver fyrirlestur er í 45 mín. og síðan umræður og fyrirspurnir í 30 mín.

                                           Einstaklingur                      Báðir foreldrar / forráðamenn / aðstandendur

Félagsmenn                       Kr. 19.000                          Kr. 28.000
Aðrir                                   Kr. 28.000                          Kr. 46.000

Skráning er hér á vef ADHD samtakanna.