Soffía Lárusdóttir forstjóri RGR, á ráðstefnu 2020
Enn eru laus sæti á Vorráðstefnu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar (RGR) en skráningar hafa gengið vonum framar. Þau sem skrá sig í dag og á morgun, 10. og 11. maí fara á biðlista en komast þó að. Haft verður samband við alla skráða þátttakendur á biðlista.
Sem fyrr verður fjallað um mörg ólík málefni sem snúa að fötluðum börnum og börnum með þroskaraskanir og því má fagfólk, sem og aðstandendur og háskólanemar í fræðunum, búast við upplýsandi dagskrá þann eina og hálfa dag sem ráðstefnan stendur.
Þetta er í fyrsta sinn sem ráðstefnan er haldin undir nýjum merkjum Ráðgjafar- og greiningastöðvar en áður hafði hún verið haldin í 36 skipti í nafni Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins, forvera RGR. Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er: Börn með fatlanir – Virkni og velferð.
Dagskrá ráðstefnunnar er hér
Biðlistaskráning