Opnir fræðslufundir ADHD samtakanna á netinu

Á meðan samkomubann stjórnvalda er í gildi, munu ADHD samtökin standa fyrir vikulegum opnum fræðslufundum með streymi á Facebook síðu samtakanna um ýmis málefni tengd ADHD. Sá fyrsti verður miðvikudaginn 25. mars kl. 19:30 um ADHD og nám  á tímum kórónuveirunnar. Fræðslufundunum verður streymt beint á Facebook síður samtakanna.

Aðrir fræðslufundir eru m.a. um ADHD, svefn og streitu, ADHD og unglinga og fleiri. Sjá má fundi sem þegar hafa verið ákveðnir á vefsíðu ADHD samtakanna, smellið hér.