Dagskrá Vorráðstefnu 2019

Vorráðstefna Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins verður haldin 9. og 10. maí undir yfirskriftinni Framtíðin er núna! Snemmtæk íhlutun barna með þroskafrávik. 

Snemmtæk íhlutun er lykilatriði í þjónustu við ung börn með raskanir í taugaþroska. Hún byggir á því að hægt er að móta taugakerfi barna fyrstu árin og með markvissum vinnubrögðum er hægt að hafa jákvæð áhrif á þroska, hegðun og færni barnanna. Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins hefur frá upphafi lagt áherslu á að kenna snemmtækar íhlutunarleiðir fyrir börn með þroskafrávik og síðastliðið haust var hugtakið fest í sessi í lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Það er því vel við hæfi að helga vorráðstefnuna í ár þessum vinnubrögðum og ýmsu sem þeim tengjast.

Hér má skoða dagskrá ráðstefnunnar