Aukanámskeið í Atferlisíhlutun og AEPS

Greiningar- og ráðgjafarstöð vekur athygli á að tveimur námskeiðum hefur verið bætt við í námskeiðsdagskrá vorannar. Annars vegar Atferlisíhlutun fyrir börn með þroskafrávik þann 19. og 20 maí og hinsvegar AEPS, færnimiðað matskerfi 2. og 3. júní. Miðað er við að námskeiðin verði haldin staðbundið; atferlisíhlutunarnámskeiðið í fundarsal Þjóðminjasafn og AEPS námskeiðið í Gerðubergi að því gefnu að samkomutakmarkanir leyfi það. Einnig minnum við á námskeiðið Röskun á einhverfurófi - grunnnámskeið er á dagskrá skv. námskeiðsáætlun vorannar þann 28. maí nk. í Gerðubergi. 

Skráning á námskeiðin er hér á vef Greiningar- og ráðgjafarstöðvar.