Námskeið í skylmingum fatlaðra hefst eftir áramót

Núna eftir áramót verður haldið námskeið í skylmingum fatlaðra með höggsverði í fyrsta sinn á Íslandi. Að námskeiðinu stendur Skylmingasamband Íslands og verður það haldið í Skylmingamiðstöðinni í Laugardal. Ingibjörg Laufey Guðlaugsdóttir mun sjá um kennslu námskeiðsins og hefur hún verið að þjálfa hjá Skylmingafélagi Reykjavíkur í fjögur ár og einnig stundað íþróttina í 13 ár.

Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Íþróttafélags fatlaðra.