Myndrænt boðskiptakerfi PECS - grunnnámskeið í mars

Grunnnámskeið í PECS
Grunnnámskeið í PECS

Dagana 22. og 23. mars næst komandi verður haldið námskeið í myndræna boðskiptakerfinu PECS (Picture Exchange Communication System) en það er óhefðbundin boðskiptaleið þróuð af Frost og Bondy (1994) fyrir börn með einhverfu. Aðaláherslan í PECS er að þjálfa frumkvæði til að hafa boðskipti við aðra. Umsjón hefur Sigrún Kristjánsdóttir þroskaþjálfi.

Fjallað verður um fræðilegan grunn og þær aðferðir sem eru notaðar til að þjálfa stigin sex í PECS. Megin áhersla á þessu námskeiði verður lögð á að þátttakendur læri innlögn og þjálfun á fyrstu þremur stigunum. Auk þess verða kynntar leiðir til að skrá framvindu og meta árangur þjálfunarinnar. Kennslan fer fram með fyrirlestrum, umræðum og með sýnikennslu. Sýnd verða dæmi um PECS þjálfun á myndböndum og þátttakendur fá tækifæri til að æfa grunnatriðin í þjálfunartækninni.

Þátttökugjald er kr. 18.000 (foreldar greiða helming þáttökugjalds).

Nánari upplýsingar um skráningu má finna hér