Framhaldsnámskeið í PECS boðskiptakerfinu

Framhaldsnámskeið í PECS boðskiptakerfinu verður haldið í Reykjavík 29. apríl 2021.

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa þekkingu á fyrstu þremur stigunum í PECS. Aðaláherslan á þessu námskeiði verður á eftirfarandi þætti í PECS þjálfun. Kynnt verða markmið og aðferðir við innlögn á seinni stigum PECS  þ.e. stig 4, 5 og 6. Kynnt verður PECS app fyrir Ipad.

Þátttakendur æfa sig við notkun setningaborða í hlutverki „barns“ og „viðmælanda“. Rætt verður um skráningar á framvindu PECS þjálfunar

Sýnd verða dæmi um PECS þjálfun á myndböndum og hugmyndir af ýmiskonar þjálfunargögnum verða kynnt fyrir þátttakendum. Farið verður yfir ýmsar hugmyndir og leiðir til þess að fjölga tækifærum til boðskipta og auka líkur á góðri alhæfingu á færni til að nota PECS í öllum daglegum aðstæðum.

Námskeiðið verður haldið í Reykjavík,  29.apríl frá klukkan 9:00– 12:30. Umsjón með námskeiðinu  hefur Sigrún Kristjánsdóttir þroskaþjálfi

Þátttökugjald er 14.000 (foreldri greiðir 9 þúsund). Þátttakendur eru beðnir um að skrá sig á námskeiðið með því að senda tölvupóst á diddakr@internet.is


Ráðgjafar- og greiningarstöð 
Digranesvegur 5 | 200 Kópavogur
Sími 510 8400 | Kennitala: 570380-0449

Afgreiðsla og skiptiborð er opið frá kl. 8.30 - 12.00 og 12.30 - 15.00 mánudaga til fimmtudaga
og föstudaga fra 8.30 – 13.00

 

Staðsetning

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur

Fáðu rafræn fréttabréf send á netfangið þitt

Svæði