AEPS – færnimiðað matskerfi (Assessment, Evaluation, Programming System for Infants and Children)

 AEPS – færnimiðað matskerfi (Assessment, Evaluation, Programming System for Infants and Children)

Hverjum er námskeiðið ætlað?
Námskeiðið er ætlað fagfólki sem starfar við ráðgjöf, þjálfun eða kennslu 0-6 ára barna með þroskafrávik. Sérstaklega er mælt með þessu námskeiði fyrir sérkennslustjóra leikskóla og stuðningaðila.

Hámarksfjöldi þátttakenda: 
Á þessu námskeiði er hámarksfjöldi þátttakenda 20.

Lýsing: 
AEPS-matskerfið er hagnýtt tæki sem nýtist við gerð einstaklingsnámskrár. Lögð er áhersla á samstarf foreldra og fagfólks við gerð markmiða og sérstakur matslisti fyrir foreldra fylgir. Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig AEPS nýtist til að meta færni barna á sex þroskasviðum: Fín- og grófhreyfingum, vitrænum þáttum, aðlögun, félagslegum tjáskiptum og félagslegu samspili. Þátttakendur fá kennslu í að leggja listann fyrir, nýta niðurstöður við gerð einstaklingsnámskrár og skipuleggja íhlutun í framhaldinu.

Námskeiðinu er skipt á tvo daga. Á fyrri deginum er farið yfir bakgrunn og fyrirlögn AEPS. Á seinni deginum er farið í úrvinnslu og nýtingu listans við gerð einstaklingsáætlana og í íhlutun. Að þessum tveimur dögum loknum er hóphandleiðsla í þrjú skipti þar sem þátttakendur eru aðstoðaðir við að nota AEPS og fá tækifæri til að deila reynslu sinni með öðrum. Dagsetningar verða ákveðnar í samráði við þátttakendur en þeir hafa einnig góðan aðgang að leiðbeinendum á milli daga ef spurningar vakna.

Gott er að hafa AEPS matskerfið meðferðis á námskeiðið og í handleiðsluna. Mörg sveitarfélög, þjónustumiðstöðvar og leikskólar eiga eintök og hvetjum við þátttakendur til að kanna hvort til sé í þeirra nærumhverfi.

Markmið er að þátttakendur: 

  • þekki bakgrunn og uppbyggingu AEPS matskerfisins
  • geti lagt það fyrir og nýtt niðurstöður við gerð einstaklingsáætlana og skipulagningu íhlutunar
  • nýti AEPS til að efla samstarf foreldra og fagfólks við að setja markmið og velja leiðir til að auka færni barnsins

Umsjón:
Þóra Björk Bjartmarz, þroskaþjálfi, Inger Jóhanna Daníelsdóttir, þroskaþjálfi og Herdís Hersteinsdóttir, þroskaþjálfi 

Ráðgjafar- og greiningarstöð 
Counselling and Diagnostic Centre
Dalshraun 1b, 2. hæð | 220 Hafnarfjörður
Sími/Tel.: 510 8400 | Kennitala: 570380-0449


Afgreiðsla og skiptiborð er opið frá kl. 8.30 - 12.00 og 12.30 - 15.00 mánudaga til fimmtudaga
og föstudaga fra 8.30 – 13.00.
Reception is open Mon. to Thurs. from 8.30 - 15.00 (closed 12.00 - 12.30) and Fri. from 8.30 - 13.00.

 

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur

Fáðu rafræn fréttabréf send á netfangið þitt

Svæði