Ungmenni með einhverfu og önnur þroskafrávik

Dagsetning og tími: 
11. og 12. nóvember 2019 kl. 09:00-15:00 (14 kennslustundir).

Verð: 34.300 kr. fyrir fagfólk og 10.300 kr. fyrir foreldra/forráðamenn.

Hverjum er námskeiðið ætlað?
Námskeiðið er ætlað foreldrum, aðstandendum og þeim sem starfa með ungmennum frá 13 ára aldri. Hér má nefna kennara, sérkennara, námsráðgjafa, þroskaþjálfa og iðjuþjálfa sem starfa innan grunn- og framhaldsskóla og fleiri. Einnig ráðgjöfum hjá skóla- og félagsþjónustu sveitarfélaga auk fagfólks innan heilsugæslu.

Hámarksfjöldi þátttakenda
Á þessu námskeiði er hámarksfjöldi þátttakenda 35 manns.

Lýsing
Fjallað verður um ódæmigert þroskaferli, styrkleika, áskoranir og hvernig það er að vera öðruvísi.  Rætt verður um áhrifaþætti varðandi sjálfsmynd, líðan, samskipti og tengsl þeirra við geðheilsu svo sem kvíða og þunglyndi. Ennfremur verður farið yfir samspil þroska og færni í daglegu lífi og hvernig skipulag og aðlögun umhverfis getur stuðlað að aukinni þátttöku og lífsgæðum ungmenna í þessum hópi.  Farið verður yfir hvort greining feli í sér létti eða sorg og hvaða þýðingu hún hefur fyrir viðkomandi einstakling, fjölskyldu hans og nærsamfélagið. Fjallað verður um viðurkennt verklag í þjónustu auk þess sem foreldri mun segja frá eigin reynslu. Námskeiðið er byggt á fyrirlestrum og umræðum.

Markmið
Að þátttakendur:

  • efli þekkingu sína á þörfum ungmenna með frávik í þroska
  • auki hæfni sína til að takast á við ýmsar áskoranir í daglegu lífi
  • geti miðlað þekkingu til fjölskyldu eða samstarfsfólks
  • tileinki sér jákvæð viðhorf

Umsjón
Laufey I. Gunnarsdóttir, þroskaþjálfi 
Elín Konráðsdóttir, félagsráðgjafi.

Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar
Skráning í námskeið er skuldbindandi og jafngildir samningi um greiðslu á námskeiðsgjaldi. Skráningu á námskeiðið „Ungmenni með einhverfu og önnur þroskafrávik“ lýkur 28. október 2019. Greiðsluseðlar verða þá sendir í innheimtu og þurfa þátttakendur að vera búnir að greiða fyrir eindaga sem er u.þ.b. viku fyrir námskeið.

Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega a.m.k. hálfum mánuði fyrir námskeiðsdag eða áður en skráningu lýkur með því að senda tölvupóst á fraedsla@greining.is.

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins áskilur sér rétt til þess að innheimta skráningar- og umsýslugjald ef tilkynning berst eftir að skráningu á námskeið er lokið.

Nánari upplýsingar um greiðsluskilmála ásamt skráningar- og umsýslugjaldi má finna hér.

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins

Digranesvegur 5 | 200 Kópavogur
Sími 510 8400 | Fax 510 8401
Kennitala: 570380-0449

Skiptiborð er opið virka daga
frá kl. 8.30-12.00 og 13.00-15.00

Staðsetning

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur

Fáðu rafræn fréttabréf send á netfangið þitt

Svæði