Systkinasmiðjan - fellur niður (yngri hópur - 1023)

Systkinasmiðjan á Ráðgjafar- og greiningarstöð er fyrir krakka  á aldrinum 7-11 ára sem eiga það sameiginlegt að eiga systkini með fötlun. 

Við leysum saman ýmis verkefni, ræðum um stöðu okkar innan fjölskyldunnar, skólans og meðal vina. Við ræðum um hvernig við leysum úr erfiðleikum sem verða á vegi okkar, meðal annars vegna systkina okkar og margt fleira. 

Þessa þætti nálgumst við meðal annarra í gegnum ýmsa skemmtilega leiki og verkefni þar sem aðalatriðið er að hvert og eitt barn fái að njóta sín sem best og tjái sig á þann hátt sem því hentar best og skemmti sér.

Verð: 11.000 á barn.
Tímasetning:  Lau. 21. og sun. 22 október 2023 frá kl. 12.00-15.00 báða dagana
Staðsetning: Ráðgjafar- og greiningarstöð, Dalshrauni 1b, Hafnarfirði. Sjá staðsetningu hér. 

Skráning fer fram hér neðar á vef RGR  en ef spurningar vakna er hægt að hafa samband við Herdísi Hersteinsdóttur í netfangið: herdis.hersteinsdottir[hjá]rgr.is

Við biðjum foreldra að skrá nafn barns sem þátttakenda á námskeiðinu en skrá eigið nafn í athugasemd. 
Sömuleiðis skrá netfang og símanr. foreldris, ekki barns. 

Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar
Skráningu á Systkinasmiðjuna lýkur 18. október 2023, en hægt verður að skrá sig á biðlista eftir það ef það er laust pláss. Eingöngu er hægt að ljúka skráningu með debet- eða kreditkortagreiðslu. 

Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega viku fyrir námskeiðsdag með því að senda tölvupóst á fraedsla@greining.is og fær þá skráður þátttakandi fulla endurgreiðslu. 

Nánari upplýsingar um greiðsluskilmála ásamt skráningar- og umsýslugjaldi má finna hér.