Systkinasmiðjan (yngri börn 0123)

Systkinasmiðjan á Ráðgjafar- og greiningarstöð er fyrir krakka  á aldrinum 7-11 ára sem eiga það sameiginlegt að eiga systkini með fötlun. 

Við leysum saman ýmis verkefni, ræðum um stöðu okkar innan fjölskyldunnar, skólans og meðal vina. Við ræðum um hvernig við leysum úr erfiðleikum sem verða á vegi okkar, meðal annars vegna systkina okkar og margt fleira. 

Þessa þætti nálgumst við meðal annarra í gegnum ýmsa skemmtilega leiki og verkefni þar sem aðalatriðið er að hvert og eitt barn fái að njóta sín sem best og tjái sig á þann hátt sem því hentar best og skemmti sér.

Verð: 11.000 á barn.
Tímasetning: Laugardagur 14. janúar og sunnudagur 15. janúar 12:00-15:00 báða dagana. 
Staðsetning: Ráðgjafar- og greiningarstöð, Dalshrauni 1b, Hafnarfirði. Sjá staðsetningu hér. 

Skráning fer fram hér neðar á vef RGR  en ef spurningar vakna er hægt að hafa samband við Herdísi Hersteinsdóttur í netfangið: herdis.hersteinsdottir[hjá]rgr.is

Við biðjum foreldra að skrá nafn barns sem þátttakenda á námskeiðinu en skrá eigið nafn í athugasemd. 
Sömuleiðis skrá netfang og símanr. foreldris, ekki barns. 

Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar
Skráning í námskeið er skuldbindandi og jafngildir samningi um greiðslu á námskeiðsgjaldi. Skráningu á námskeiðið Systkinasmiðjan lýkur 10. janúar 2023. Greiðsluseðlar verða þá sendir í innheimtu og þurfa þátttakendur að vera búnir að greiða fyrir eindaga sem er u.þ.b. viku fyrir námskeið.

Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega a.m.k. hálfum mánuði fyrir námskeiðsdag eða áður en skráningu lýkur með því að senda tölvupóst á fraedsla@rgr.is.

Ráðgjafar- og greiningarstöð áskilur sér rétt til þess að innheimta skráningar- og umsýslugjald ef tilkynning berst eftir að skráningu á námskeið er lokið.

Nánari upplýsingar um greiðsluskilmála ásamt skráningar- og umsýslugjaldi má finna hér.

Ráðgjafar- og greiningarstöð 
Counselling and Diagnostic Centre
Dalshraun 1b, 2. hæð | 220 Hafnarfjörður
Sími/Tel.: 510 8400 | Kennitala: 570380-0449


Afgreiðsla og skiptiborð er opið frá kl. 8.30 - 12.00 og 12.30 - 15.00 mánudaga til fimmtudaga
og föstudaga fra 8.30 – 13.00.
Reception is open Mon. to Thurs. from 8.30 - 15.00 (closed 12.00 - 12.30) and Fri. from 8.30 - 13.00.

 

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur

Fáðu rafræn fréttabréf send á netfangið þitt

Svæði