Skipulögð kennsla

Staðsetning: Menningarmiðstöðin í Gerðubergi. Sjá kort hér

Dagsetning og tími: 22., 23. og 24. mars 2021 frá klukkan 09:00-16:00 alla dagana. 24 kennslustundir.

Verð: Fagaðili: 52.500.- Aðstandandi: 15.300.-

Hverjum er námskeiðið ætlað?
Námskeiðið er ætlað aðstandendum og fagfólki sem starfar með börnum og ungmennum með einhverfu, í skólum, á sambýlum, eða hvar sem einhverfir einstaklingar búa og starfa. 

Hámarksfjöldi þátttakenda
Á þessu námskeiði er hámarksfjöldi þátttakenda 30.

Lýsing
Námskeiðið er byggt á hugmyndafræði TEACCH (Treatment and Education of Autistic and related Communication handicapped Children). Á námskeiðinu er kynning á hugmyndafræði TEACCH og Skipulagðrar kennslu. Fjallað verður um hvernig aðferðir Skipulagðrar kennslu taka tillit til þeirrar skerðingar á taugaþroska sem fylgir einhverfu, s.s. skerðing í boðskiptum og félagslegum samskiptum. Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, mynddæmum, umræðum og þjálfun þátttakenda. Skipt er upp í hópa og útbúin vinnusvæði þar sem þátttakendur fá að æfa sig með nemendum á ólíkum aldri, sem eru öll með einhverfu. 

Markmið
Að þátttakendur:

  • fái innsýn í hugmyndafræði TEACCH
  • læri grunnatriði skipulagðrar kennslu og vinnubragða
  • geti tekið þátt í uppbyggingu og notkun skipulagsins í skóla, á vinnustað eða heimili einstaklings með einhverfu.

Umsjón: 
Helga Kristín Gestsdóttir iðjuþjálfi

Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar
Skráning í námskeið er skuldbindandi og jafngildir samningi um greiðslu á námskeiðsgjaldi. Skráningu á námskeiðið Skipulögð kennsla lýkur 8. mars 2021. Greiðsluseðlar verða þá sendir í innheimtu og þurfa þátttakendur að vera búnir að greiða fyrir eindaga sem er u.þ.b. viku fyrir námskeið.

Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega a.m.k. hálfum mánuði fyrir námskeiðsdag eða áður en skráningu lýkur með því að senda tölvupóst á fraedsla@greining.is.

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins áskilur sér rétt til þess að innheimta skráningar- og umsýslugjald ef tilkynning berst eftir að skráningu á námskeið er lokið.

Nánari upplýsingar um greiðsluskilmála ásamt skráningar- og umsýslugjaldi má finna hér.