Fáðu rafræn fréttabréf send á netfangið þitt
Flýtilyklar
Röskun á einhverfurófi, grunnnámskeið (0921)
Staðsetning: Menningarmiðstöðin í Gerðubergi. Sjá kort hér!
Dagsetning og tími: 30. september 2021 kl. 9:00 - 14:00. 6 kennslustundir.
Verð: Fagaðili: 20.300.- Aðstandandi: 6000.-
Hverjum er námskeiðið ætlað?
Námskeiðið er ætlað aðstandendum og starfsfólki sem sinnir umönnun, þjálfun og kennslu barna með einhverfu, Aspergers heilkenni og aðrar raskanir á einhverfurófi.
Hámarksfjöldi þátttakenda
Á þessu námskeiði er hámarksfjöldi 50.
Lýsing
Fjallað er um einhverfurófið, einkenni einhverfu og birtingarform þeirra, greiningu, álag á fjölskylduna og samstarf foreldra og fagfólks. Námskeiðið byggist aðallega á fyrirlestrum og umræðum, auk fræðslumyndbanda. Námskeiðið er hugsað sem fyrsta skrefið í fræðslu um einhverfu og grunnur að öðrum námskeiðum með afmarkaðari viðfangsefnum. Kennslu- og meðferðarleiðir verða til dæmis ekki kynntar á þessu námskeiði heldur á öðrum námskeiðum.
Markmið
Efla skilning og þekkingu aðstandenda og fagfólks á þörfum barna á einhverfurófi og auka gæði þeirrar þjónustu sem þegar er veitt.
Umsjón
Guðrún Þorsteinsdóttir, félagsráðgjafi
Svandís Ása Sigurjónsdóttir, sálfræðingur
Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar
Skráning í námskeið er skuldbindandi og jafngildir samningi um greiðslu á námskeiðsgjaldi. Skráningu á námskeiðið Röskun á einhverfurófi, grunnnámskeið lýkur 21. september 2021. Greiðsluseðlar verða þá sendir í innheimtu og þurfa þátttakendur að vera búnir að greiða fyrir eindaga sem er u.þ.b. viku fyrir námskeið.
Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega a.m.k. hálfum mánuði fyrir námskeiðsdag eða áður en skráningu lýkur með því að senda tölvupóst á fraedsla@greining.is.
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins áskilur sér rétt til þess að innheimta skráningar- og umsýslugjald ef tilkynning berst eftir að skráningu á námskeið er lokið.
Nánari upplýsingar um greiðsluskilmála ásamt skráningar- og umsýslugjaldi má finna hér.